Quantcast
Channel: Hlaðvarp Heimildarinnar
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2066

Pottersen – Fyrsti þáttur: Sagan hefst

$
0
0
Systkinin Emil Hjörvar Petersen og Bryndís Freyja Petersen hittast á Skype og kafa saman ofan í heillandi heim Harry Potter-bókanna. Þegar Bryndís var yngri las hún bækurnar spjaldanna á milli en Emil er að lesa þær í fyrsta skipti, og því er Pottersen hlaðvarp bæði fyrir Potter-sérfræðinga og nýgræðinga. Í þessum fyrsta þætti segir Bryndís m.a. frá hversu gagntekin hún var af bókunum, Emil veltir fyrir sér hversu skemmdur Harry hlýtur að vera eftir að hafa alist upp við svo skelfilegar aðstæður, pælingar um kynningu á söguheiminum eru áberandi, rætt er um mállýsku Hagrids og fitufordóma gagnvart Dursley-hjónunum, tæpt er á því hversu gott er að nöfn persóna voru ekki þýdd, því annars hefðum við Harald Pétursson, Rónald Vestmann og Hermínu Grundfjörð. Og margt fleira. Sagan er rétt að hefjast. Kjarn­inn í sam­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­starfi við Storytel bíður þér að hlusta frítt á þús­undir hljóð­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­anum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.­storyt­el.is/kjarn­inn og byrja að njóta. Storyt­el.is, þús­undir hljóð­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­bóka í sím­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­anum þín­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­um.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 2066